SKILAGJALD
· Einungis heilar skilagjaldsskyldar drykkjarumbúðir inn á talningavélar. Ekki er heimilt að sinna flokkun á umbúðum eða sorpi við talningavélar þar sem slíkt tefur afgreiðslu og teppir vélar.
· Efni þarf að vera hreinlegt, drykkjarumbúðir tómar og laust við allt heimilissorp.
· Við áskiljum okkur þann rétt að hafna afgreiðslu á efni og vísa viðskiptavinum frá sem uppfylla ekki þessar kröfur.
I work as a lecturer at the college. I like to work with students as it’s very interesting and exciting. In my free time, I help them at the writemyessay students resource. I like writing, and I’m very happy to be useful to someone who needs it.
REGLUR UM SKIL Á BEYGLUÐUM UMBÚÐUM:
-
Einungis beyglaðar skilagjaldsskyldar umbúðir. Flokkað þarf eftir efnistegund. Ál í sérpoka og plast í sérpoka.
-
Efni þarf að vera hreinlegt, drykkjarumbúðir tómar og laust við allt heimilissorp
-
Við áskiljum okkur þann rétt að hafna afgreiðslu á efni sem uppfyllir ekki ofangreindar kröfur.
-
Móttaka á beygluðum dósum er ekki í forgangi og mega viðskiptavinir því búast við lengri bið á afgreiðslu á slíkum umbúðum.
Í flestum nágrannalöndum okkar er skilagjald glatað þegar að umbúð er beygluð. Endurvinnslan vinnur út frá þeim sjónarmiðum að hver drykkjarumbúð skiptir máli óháð ástandi. Við biðjum því viðskiptavini sem skila inn beygluðum umbúðum að sýna starfsfólki okkar biðlund og hafa skilning á að beyglaðar umbúðir eru ekki forgangsvara. Aðilar sem skila slíku efni inn til okkar megi búast við lengri biðtíma fyrir afgreiðslu.
-
Talning Endurvinnslunar hf. gildir við útgreiðslu og talningu efnis. Viðskiptavinur getur fengið rauntímaupplýsingar um talningu óski hann eftir slíku. Telji hann misræmi vera á milli talningu okkar og eigin talningu ber honum að tilkynna slíkt samstundis áður en umbúðum er komið í endurvinnsluferli. Berist athugasemdir ekki í rauntíma gildir talning Endurvinnslunar hf.
STÓRAR SAFNANIR ÍÞRÓTTAFÉLAGA OFL.
-
MÓTTÖKUSKILMÁLAR OG REGLUR –
50 svartir ruslapokar eða fleiri
-
Ekki er tekið við söfnunum um helgar eða eftir kl: 16:30 virka daga.
-
Hringja þarf með í það minnsta dags fyrirvara í stöðvarstjóra og festa tíma til afhendingar á umbúðum.
-
Hægt er að fá lánaða stórsekki og kör fyrir stærri safnanir. Einnig má skila söfnunum í svörtum ruslapokum. Þá þarf að flokka efni eftir efnistegund, þ.e.a.s einungis ein tegund af efni í hverjum poka ( Álpokar, glerpokar, plastumbúðapokar )
-
Safnanir teljast 50 svartir ruslapokar eða meira. Minna magn fer í talningavélar. Þetta er ófrávíkjanleg regla.
-
Allt efni skal vera hreinlegt og laust við heimilisrusl og matarleyfar.
-
Talning starfsmanna Endurvinnslunar gildir.
-
Ef ekki er farið eftir þessum reglum áskilur Endurvinnslan sér þann rétt að hafna móttöku á viðkomandi söfnun.
-
Greiðsla fer fram innan 10 virka daga frá móttöku
PLASTFLÖSKUR :
FER SÉR Í SEKKI
( Einungis plastflöskur í sekk )FRÁGANGUR Á SEKKJUM :
Þegar sekkirnir eru fullir með c.a 15cm brún á sekknum þá setjum við plastpoka ofan á drykkjarumbúðir sem er í sekknum og tökum ca 60-70cm snæri og þræðum snærið í gegnum hanka á sekk og herðum að þannig að engin hætta er að það fari hvorki dósir né plastflöskur út úr sekk. Sekkir fást lánaðir hjá Endurvinnsluni.
ÁLDÓSIR:
FER SÉR Í SEKKI
( Einungis áldósir í sekk )GLER:
FER SÉR Í KÖR
( Einungis glerflöskur í körum )FRÁGANGUR Á KÖRUM :
Glerið er sett laust í körin þannig að það sé ca. 5 cm. brún á körunum til að það sé auðvelt að stafla þeim upp. Glerið á að vera laust í kari, ekki í plastpokum. Kör fást lánuð hjá Endurvinnsluni.Grænir skátar
Bjóða samtökum sem safna skilagjaldsskildum umbúðum upp á að sækja dósir, flokka og telja gegn gjaldi. Grænir skátar bjóða upp á að aðstoða við undirbúning og skipulag söfnunar.
Nánari upplýsingar á graenirskatar.is
-


