Samfélagslegt hlutverk
Frá stofnun Endurvinnslunnar hefur fyrirtækið lagt metnað í að styðja við góð málefni. Fjölmargir aðilar treysta á tekjur af umbúðasöfnun í starfsemi sinni eins og t.d. íþróttafélög, björgunarsveitir, skátahreyfingin ofl.
Endurvinnslan leitast einnig við að hafa atvinnuskapandi áhrif fyrir verndaða vinnustaði og er nú í samstarfi við Dósasel í Keflavík, Fjöliðjuna á Akranesi og í Borganesi og Plastiðjuna Bjarg á Akureyri.
Með umbúðasöfnun hefur tekist að forða landinu frá því að umbúðir liggi á víðavangi eða fylli ruslahauga þannig að umbúðasöfnun er mikið átak í náttúruvernd. Endurvinnsla sparar einnig orku sem annars færi í að frumvinna efni á nýjan leik.
Í afgreiðslu Endurvinnslunnar hf. að Knarrarvogi 4 og Dalvegi 28 er hægt að gefa þá upphæð sem fæst fyrir safnaðar umbúðir til góðgerðarmála með notkun þar til gerðra góðgerðakorta. Árlega nemur slík söfnun hundruðum þúsunda. Þessi félög eru;
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
Fjölskylduhjálp Íslands
Rauði kross Íslands
Hekluskógar