Gler
Gler er 100% endurvinnanlegt og hægt er að endurvinna það “endalaust” án þess að það tapi gæðum. Það getur hins vegar tekið glerflösku allt að milljón ár að leysast upp í umhverfinu. Gler er þó ekki mjög skaðlegt umhverfinu. Enn hefur Endurvinnslunni ekki tekist að endurvinna gler í nýtt gler. Hefur kostnaður einfaldlega reynst of mikill og umhverfisáhrifin af því að flytja gler til annarra landa dregið úr ávinningi. Gler er þó endurnýtt m.a. sem undirlag í stofnbrautir og til jarðfyllingar. Gerðar hafa verið ýmsar prófanir með gler í malbik og í steinteppi. Prófanirnar hafa komið mjög vel út og vonandi er hægt að endurnýta gler þannig í auknum mæli í framtíðinni. Skoðað hefur verið með að nota gler í glerull eða í iðnaðarsápu. Hafir þú hugmyndir um hvernig endurvinna eða endurnýta má gler, tökum við hjá Endurvinnslunni fagnandi öllum ábendingum.
Verið er að vinna í lagasetningu sem skyldar endurvinnslu glers samkvæmt tilskipun ESB. Stutt er því í að gler verði enurunnið í nýtt gler.
Kostnaðarsamt er að taka við gleri og því hefur Endurvinnslan hf. ekki tekið við öðru gleri en því sem tilheyrir skilakerfi drykkjarumbúða. Glerkrukkur og önnur glerílát þarf því að fara með á gámastöðvar eða í grenndargáma.